Mótorhjól · Búnaður · ÞjónustaÁlfhella 4 · 221 HafnarfjörðurSími: 537 0000

Vöruleit

Hvað leitarðu að?

Leitaðu að hjóli, búnaði eða vörumerki.

Okkar saga

Ástríða sem varð að ævistarfi

Unnar Már Magnússon

Mótorhjólaáhuginn kviknaði líklega þegar ég var um tíu ára og hefur fylgt mér síðan. Ég eignaðist ekki eigið hjól fyrr en aldurinn leyfði, en fram að því nýtti ég hvert tækifæri til að prófa hjá vinum og kunningjum. Í sveitinni hafði ég líka afnot af hjóli. Það fór stundum heldur hljóðlega í bókhaldið hjá fullorðna fólkinu.

Ég hafði meira að segja safnað fyrir mótorhjóli og var nærri búinn að ganga frá kaupunum áður en aldurinn leyfði. Foreldrar mínir stöðvuðu þá framkvæmd, en lofuðu að hjálpa mér að kaupa nýtt hjól þegar rétti tíminn kæmi. Um fimmtán ára aldurinn, með skellinöðruprófið í höfn, var nýtt hjól loksins komið undir mig.

Fyrst þurfti að halda skellinöðrunni gangandi. Svo þurfti hún auðvitað að ganga hraðar. Það var borað út, þjöppan hækkuð og leitað að aðeins meira afli. Viðhaldið var fljótt orðið að þróunarverkefni.

Þarna hófst áhuginn á að skilja hjólin og láta þau vinna betur. Síðar fór ég að vinna hjá Vélhjólum og Sleðum, síðan á bílaverkstæðum og í nám. Ég er menntaður bifvélavirki og hef einnig lokið námi í vélvirkjun.

Tveggja metra stökk og mikilvægur lærdómur

Ég byrjaði að keppa í kvartmílu árið 1988. Fyrsta árið fór að mestu í að læra á þetta. Árið 1989 keypti ég minna en öflugt hjól sem snerist allt að 13.000 snúningum á mínútu. Það hljómaði lofandi, en þétt hlutföll gírkassans gerðu hjólið illa fallið til kvartmílukeppni.

Ein tilraun á ráslínunni gleymist seint. Ég lét hjólið fara í 13.000 snúninga á fullri gjöf og sleppti kúplingunni. Dekkið spólaði ekki. Hjólið stökk um tvo metra áfram og drap á sér. Þrettán þúsund snúningar, tveir metrar og töluvert eftir að læra.

Á þessum árum kynntist ég einnig MX- og enduro-hjólum. Um 1989 tók ég þátt í minni fyrstu og einu endurokeppni, í Þorlákshöfn, og endaði í fjórða sæti.

Frá æfingahringjum til Bretlands

Valgeir Pétursson átti stóran þátt í undirbúningi mínum. Við hjóluðum óteljandi æfingahringi í kringum Mjólkursamsöluna og hann fór síðan með mér utan í kappakstursskóla. Kennararnir hvöttu mig til að fara að keppa erlendis og skrifuðu meðmælabréf fyrir mig. Ég tók þeim á orðinu.

Til Bretlands fór ég með hjól sem ég hafði breytt sjálfur. Þar var ég reglulega meðal sex efstu, komst á verðlaunapall og vann keppnir. Að sjá hjólið sem maður hafði sjálfur unnið í skila sér upp á verðlaunapall var sérstök tilfinning.

Árangurinn rataði líka á síður MCN (Motorcycle News), útbreiddasta mótorhjólblaðs þess tíma, sem kom út á hverjum miðvikudegi. Blaðið fjallaði um árangur minn í Bretlandi og lýsti mér sem „regular top 6 finisher“ — ökumanni sem lauk keppnum reglulega meðal sex efstu.

Unnusta mín á þeim tíma, Hella Svavarsdóttir, hélt mér félagsskap og aðstoðaði mig meðan ég keppti í Bretlandi. Hún var mikilvægur hluti af þessum árum og öllu því sem fylgdi keppnunum.

Helgin sem ég gleymi ekki

Ein skemmtilegasta upplifun mín var á Mallory Park. Þar tók ég þátt í tveimur stuðningskeppnum á British Superbike-keppnishelgi, í opnum flokki á litlu Honda CBR600 F2-hjólinu mínu á móti 750 og 1000 rúmsentímetra hjólum. Í fyrri keppninni varð ég annar. Í þeirri seinni sigraði ég.

Þúsundir áhorfenda voru á staðnum. Ég man enn hávaðann þegar mannfjöldinn hvatti mig áfram. Hann yfirgnæfði jafnvel hljóðið í hjólunum, þótt þau væru öll með keppnispústkerfi. Þessi helgi situr enn sterkt í mér, bæði úrslitin og stemningin.

Samvinna, úthald og þekking

Síðar fórum við Kalli Gunnlaugs og Steini Tótu saman til Bretlands sem lið og kepptum í endurance-kappakstri. Þar reyndi á samvinnu, úthald og áreiðanleika hjólsins. Best náðum við öðru sæti í heildina.

Ég hafði þá kynnst Ron Grant, fyrrum Grand Prix-keppanda sem hafði síðar starfað við keppnislið og liðsstjórn, meðal annars hjá Honda í Bretlandi. Hann hafði mikla sérþekkingu á Honda-keppnisvélum og kenndi mér margt. Ég aðstoðaði hann við að breyta og setja upp hjólið sem við kepptum síðan á í endurance-keppnunum. Það var dýrmætt að læra af reynslu hans og sjá hvernig vandaður undirbúningur skilaði sér í keppni.

Frá Dynojet-mælingum til innflutnings

Þegar maður eyðir svona miklum tíma í breytingar vill maður líka vita hvað þær skila. Ég var fyrstur á Íslandi til að bjóða hestaflamælingar, með Dynojet-búnaði, og bauð einnig allar vörur frá Dynojet. Mælingarnar sýndu afl og tog og gerðu kleift að bera saman niðurstöður fyrir og eftir breytingar. Þá var hægt að sjá svart á hvítu hvað virkaði og vinna áfram út frá því.

Forvitnin hélt áfram að leiða mig að nýjum lausnum. Ég var fyrstur með rafskipta hér á landi, ásamt ýmsu öðru sem tengdist breytingum og uppsetningu hjóla. Reynslan úr keppnunum og af verkstæðinu nýttist þar vel og kom líka öðrum ökumönnum til góða.

Árið 2000 hóf ég innflutning á Aprilia og árið 2019 bættist innflutningur Ducati-hjóla við. Þar komu verkstæðisvinnan, keppnisreynslan og ítölsku mótorhjólin saman. Sú blanda er stór hluti af Italis í dag.

Hraðinn hefur fengið aðra merkingu

Hraði hefur alltaf heillað mig, en áherslurnar hafa breyst. Hámarkshraðinn skiptir mig litlu máli í dag. Það sem heillar mig mest er hraðinn í gegnum beygjurnar á brautinni. Þar mætast aksturinn og tæknin: hvernig hjólið liggur, hvernig fjöðrunin vinnur og hvernig uppsetningin nýtist ökumanninum.

Keppnisferill minn spannar tæp fjörutíu ár, hér heima og erlendis. Ég hef orðið margfaldur Íslands- og bikarmeistari, sett fjölmörg Íslandsmet og starfað sem MotoGP-kynnir hér á landi. Með tæknilegri aðstoð og ráðgjöf hef ég einnig hjálpað öðrum keppendum að setja met og vinna titla.

Reynslan á bak við Italis

Italis byggir á meira en fjórum áratugum í mótorhjólum, verkstæðisvinnu, keppni og tengslum við erlend keppnislið og sérfræðinga. Sú reynsla nýtist á hverjum degi þegar við ráðleggjum viðskiptavinum, finnum bilanir, undirbúum hjól og stillum þau fyrir ökumanninn og það sem hann ætlar að gera.

Áhuginn sem kviknaði í barnæsku er enn sá sami. Hann hefur fylgt mér frá fyrstu skellinöðrunni, í gegnum keppnisárin og inn á verkstæðið. Og enn er eitthvað nýtt að læra með hverju hjóli.

Myndir úr keppnisferlinum

Smelltu á mynd til að stækka. Hægt er að fletta milli myndanna.

Kynntu þér keppnislið Italis →

Hafðu samband

Sími: 537 0000
Netfang: [email protected]

Sýningarsalur
Álfhella 4, 221 Hafnarfjörður

Verkstæði og lager
Óseyrarbraut 7

Forskot fyrir þig

Italis Exclusive

Fáðu forskot á valin tilboð, nýjar vörur og takmarkað framboð.

Með skráningu óskar þú eftir tölvupósti frá Italis Exclusive. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Mínar vörur

Viltu vista uppáhaldsvörur og nýlega skoðaðar vörur í þessum vafra? Vistunin varir í allt að 90 daga og þú getur hreinsað hana hvenær sem er á „Mínum vörum“.

Þetta er án innskráningar og flyst ekki á milli tækja.