Frétt
Sigurlaun Italis fyrir Ducati 2027–2028

Lesa reglur sigurlauna 2027–2028 →

Sigraðu á Ducati — Italis verðlaunar árangurinn. Italis býður peningaverðlaun fyrir árangur á Ducati-hjólum keyptum hjá Italis á Íslandsmótunum 2027 og 2028. Verðlaunin gilda sjálfstætt hvort ár fyrir sig og sömu upphæðir eru í boði bæði tímabilin.
Lesa reglur og skráningarskilyrði sigurlaunanna →
Motocross: MX1, MX2 og opinn kvennaflokkur
- 25.000 kr. fyrir sigur í hverju móto.
- 300.000 kr. fyrir Íslandsmeistaratitil í hverjum þessara flokka.
Gildir aðeins í aðalflokkum og A-úrslitum ef keppt er í A- og B-úrslitum. Hobbý, B-flokkar, B-úrslit og sérstakir unglinga-, aldurs- eða aðrir undirflokkar eru undanskildir.
Mótorhjólakappakstur: Superbike
- 25.000 kr. fyrir sigur í hverjum kappakstri í Superbike.
- 300.000 kr. fyrir Íslandsmeistaratitil í Superbike.
Enduro: aðeins heildarúrslit karla og kvenna
- 15.000 kr. fyrir heildarsigur karla eða heildarsigur kvenna í hverri Íslandsmeistarakeppni í Enduro fyrir alla.
- 200.000 kr. fyrir heildar-Íslandsmeistaratitil karla og 200.000 kr. fyrir heildar-Íslandsmeistaratitil kvenna.
Verðlaunin gilda ekki fyrir sigur eða titil í einstökum aldursflokkum, getu-, vélarstærðar- eða öðrum undirflokkum. Sigur í undirflokki einum og sér gefur ekki rétt á greiðslu. Hard Enduro, bikarmót og aðrar mótaraðir eru ekki hluti af þessu kerfi.
Sigurlaun og titilverðlaun leggjast saman
Keppandi getur unnið sér inn bæði sigurlaun fyrir einstakar keppnir og viðbótarverðlaun fyrir Íslandsmeistaratitil. Greiðslur miðast við staðfest lokaúrslit og að skilyrði verðlaunakerfisins séu uppfyllt.
Skráning, myndir og myndleyfi
Þátttakendur þurfa að skrá sig hjá Italis áður en þeir keppa um viðkomandi sigurlaun. Þeir skulu skila staðfestum úrslitum og myndum frá keppni og verðlaunaafhendingu, með nauðsynlegum leyfum til að Italis geti notað efnið í kynningar- og auglýsingastarfi. Sérstakar reglur gilda um keppendur undir 18 ára aldri.
Sjá allar reglur sigurlauna Italis fyrir Ducati 2027–2028.
Ertu að skipuleggja keppnistímabilin 2027 og 2028? Hafðu samband við Italis um Ducati-keppnishjólin og þátttöku í verðlaunakerfinu.