Mótorhjól · Búnaður · ÞjónustaÁlfhella 4 · 221 HafnarfjörðurSími: 537 0000

Vöruleit

Hvað leitarðu að?

Leitaðu að hjóli, búnaði eða vörumerki.

Italis keppnislið – Heritage skjaldarmerki

Keppnislið

Enduro

Enduro
Ducati Desmo450 EDS – rauð staðalútgáfa enduro-hjóls með ljósum
Kynningarmynd frá Ducati af staðalútgáfu hjólsins.

Italis Racing · Enduro

Metnaður utan alfaraleiða.

Við undirbúum Enduro-keppnislið Italis með Ducati Desmo450 EDS. Liðið byggir á góðum undirbúningi, samvinnu og áhuga á akstri í fjölbreyttu landslagi.

Ráðning ökumanna og undirbúningur búnaðar eru í vinnslu. Ökumenn verða kynntir hér þegar ráðningu er lokið.

Ökumennirnir okkar

Enduro

Ökumaður tilkynntur síðar

Ducati Desmo450 EDS

Nafn, mynd og kynning bætast við þegar ráðningu er lokið.

Hjólið · Enduro

Ducati Desmo450 EDS

Desmo450 EDS er grunnur Enduro-verkefnisins okkar. Eins strokks Desmodromic-vél, sex gíra kassi og 18 tommu afturfelga eru meðal þess sem aðgreinir EDS frá MX-hjólunum.

Ducati Desmo450 EDS – kynningarmynd Ducati
Ducati Desmo450 EDS. Kynningarmynd: Ducati.
Desmo450 EDS · Verksmiðjugögn
Vél449,6 cm³ · Eins strokks, fjórgengis, DOHC, Desmodromic, vökvakæling
Afl42 hö. / 30,9 kW við 6.750 sn./mín.
Tog45 Nm við 5.750 sn./mín.
Gírkassi6 gírar · Vökvastýrð kúpling
GrindSoðin álgrind
FjöðrunStillanlegur Showa 49 mm framgaffall og Showa afturdempari
Slag fjöðrunar310 mm að framan / 301 mm að aftan
FelgurTakasago Excel · 21″ að framan / 18″ að aftan
BremsurGalfer 260 / 240 mm diskar · Brembo
Þyngd119,9 kg með vökvum, án eldsneytis · Staðalútgáfa
Sætishæð970 mm
Eldsneytistankur8,5 lítrar
GrunnbúnaðurLED fram- og afturljós, LCD mælaborð og líþíumrafhlaða

Tölurnar hér eru fyrir staðalútgáfu EDS frá Ducati. Keppnisuppsetning, breytingar og þyngd hjóla liðsins verða kynnt þegar búnaðurinn hefur verið ákveðinn. Myndin er kynningarmynd Ducati; myndir af eigin hjólum liðsins bætast við síðar.

Myndir og tæknigögn: Ducati Desmo450 EDS →

Liðið tekur á sig mynd

Hér birtast kynningar á ökumönnum, myndir af hjólunum og fréttir af undirbúningi. Síðar bætast við keppnisdagskrá og úrslit.

← Til baka í yfirlit

Forskot fyrir þig

Italis Exclusive

Fáðu forskot á valin tilboð, nýjar vörur og takmarkað framboð.

Með skráningu óskar þú eftir tölvupósti frá Italis Exclusive. Þú getur afskráð þig hvenær sem er. Persónuvernd

Mínar vörur

Viltu vista uppáhaldsvörur og nýlega skoðaðar vörur í þessum vafra? Vistunin varir í allt að 90 daga og þú getur hreinsað hana hvenær sem er á „Mínum vörum“.

Þetta er án innskráningar og flyst ekki á milli tækja.