Keppnislið
Superbike

Italis Racing · Superbike
Tveir ökumenn. Eitt lið.
Árni Þór Jónasson og Jóhann Sigurjónsson keppa fyrir hönd Italis á Ducati Panigale V2 Bayliss. Ítölsk keppnishefð mætir íslenskri ástríðu fyrir brautarkappakstri.
Hér á Íslandi er þátttakendahópurinn enn lítill og keppt er í sameiginlegum Superbike-flokki. Það skapar vettvang fyrir fjölbreytt hjól og fleiri keppendur á sömu ráslínu. Okkar framlag er lið sem byggir á góðum undirbúningi, samvinnu og metnaði á brautinni.
Ökumennirnir okkar

Italis Racing · Ökumaður
Árni Þór Jónasson #31
Superbike
Ducati Panigale V2 Bayliss

Italis Racing · Ökumaður
Jóhann Sigurjónsson #5
Superbike
Ducati Panigale V2 Bayliss
Liðsstjórn og tæknimál

Italis Racing · Superbike
Unnar Már Magnússon
Team Manager & Chief Mechanic
Unnar heldur utan um liðsstjórn og tæknilegan undirbúning Superbike-liðs Italis.
Sími: 888 0001
Netfang: [email protected]
Hjólin okkar
Ducati Panigale V2 Bayliss
Bayliss-útgáfan heiðrar fyrsta heimsmeistaratitil Troy Bayliss í World Superbike árið 2001. Einkennandi rauðir, hvítir og grænir litir, númeruð framleiðsla og Öhlins-fjöðrun gera hana að sérstakri útgáfu Panigale V2.
Helstu tæknilýsingar
Verksmiðjugögn fyrir staðalútgáfu Bayliss. Nánari upplýsingar um keppnisbúnað og breytingar á hjólum liðsins bætast við síðar.
| Vél | 955 cm³ Superquadro, tveir strokkar, vökvakæling |
|---|---|
| Afl | 155 hö. / 114 kW við 10.750 sn./mín. |
| Tog | 104 Nm við 9.000 sn./mín. |
| Gírkassi | 6 gírar · Ducati Quick Shift upp og niður |
| Grind | Monocoque úr áli |
| Fjöðrun | Stillanlegur Öhlins 43 mm framgaffall og TTX36 afturdempari |
| Bremsur | Brembo M4.32 · Tveir 320 mm diskar að framan |
| Rafeindabúnaður | Cornering ABS, spólvörn, framhjólalyftustýring og vélarbremsustýring |
| Sætishæð | 835 mm |


Myndirnar sýna staðalútgáfu frá Ducati. Myndir af eigin hjólum liðsins bætast við. Myndir og tæknigögn: Ducati →
Fylgstu með liðinu
Hér birtast myndir af ökumönnunum og hjólunum, fréttir af undirbúningi og síðar úrslit af brautinni.