Viðburður
Ducati 100 ára – akstur og grill

Laugardagur 5. september 2026 · kl. 12:00–14:00
Í tilefni 100 ára afmælis Ducati býður Italis Ducati-eigendum og félagsmönnum DOC Iceland í sameiginlegan akstur og grill.
Dagskrá
- 12:00 – Mæting hjá Italis, Álfhellu 4
- 12:15 – Stuttur sameiginlegur rúntur innanbæjar
- Um 13:00 – Grill fyrir þátttakendur
- 14:00 – Opin Ducati-hjólasýning hefst
Viðburðurinn er ætlaður Ducati-eigendum og félagsmönnum DOC Iceland. Þeir sem ætla að taka þátt í akstrinum eru beðnir um að skrá sig svo hægt sé að gera ráð fyrir fjölda í grillinu.
Akstur er á eigin ábyrgð, farið verður eftir umferðarlögum og dagskrá getur tekið breytingum vegna veðurs.
Viðburðinum er lokið og skráningu lokað.